Carmen Tyson-Thomas
Carmen Tyson-Thomas
Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur tilkynnti í gærkvöld að félagið hefði rift samningi sínum við Carmen Tyson-Thomas, sem farið hefur á kostum með kvennaliði félagsins í vetur.

Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur tilkynnti í gærkvöld að félagið hefði rift samningi sínum við Carmen Tyson-Thomas, sem farið hefur á kostum með kvennaliði félagsins í vetur.

Tyson-Thomas er stigahæst allra leikmanna Dominos-deildarinnar í vetur, en hún hefur skorað 37 stig að meðaltali í leik. Þá hefur hún tekið 16,5 fráköst að meðaltali. Í tilkynningu frá Njarðvík segir að samskiptaörðugleikum sé um að kenna.

Njarðvík siglir lygnan sjó í deildinni þegar þrjár umferðir eru eftir, á hvorki möguleika á úrslitakeppni né er í hættu á falli.