Búningar Gestir eru hvattir til að mæta í þjóðbúningi síns heimalands.
Búningar Gestir eru hvattir til að mæta í þjóðbúningi síns heimalands. — Morgunblaðið/Ómar
Þjóðbúningadagur Þjóðminjasafns Íslands í Safnahúsinu verður kl. 14 á morgun, sunnudaginn 12. mars. Gestir eru hvattir til að mæta í þjóðbúningi síns heimalands.

Þjóðbúningadagur Þjóðminjasafns Íslands í Safnahúsinu verður kl. 14 á morgun, sunnudaginn 12. mars. Gestir eru hvattir til að mæta í þjóðbúningi síns heimalands. Þetta er kjörið tækifæri fyrir alla þá sem eiga búning að nota hann og jafnframt fyrir áhugasama að kynnast fjölbreytileika þjóðbúninganna.

Félagar í Þjóðdansafélagi Reykjavíkur sýna þjóðdansa og bjóða viðstöddum að taka þátt í dansinum. Sýndir verða þjóðbúningar eftir Helgu Áslaugu Þórarinsdóttur sem verður 90 ára í sumar. Helga er áhugafólki um íslenska þjóðbúninga að góðu kunn enda hefur hún áratugum saman verið mikilsvirkur félagsmaður bæði í Þjóðdansafélagi Reykjavíkur og Heimilisiðnaðarfélagi Íslands.

Aðgangur er ókeypis fyrir þá sem mæta í þjóðbúningi.