Áhlaupshelgin. V-Enginn
Norður | |
♠Á92 | |
♥ÁK543 | |
♦109 | |
♣ÁD4 |
Vestur | Austur |
♠KD753 | ♠108 |
♥D8 | ♥G1092 |
♦DG843 | ♦ÁK765 |
♣G | ♣109 |
Suður | |
♠G64 | |
♥76 | |
♦2 | |
♣K876532 |
Suður spilar 6♣.
Sömu helgi og snjóaði á höfuðborgarsvæðinu var spilað Íslandsmót í tvímenningi í húsakynnum BSÍ við Síðumúla. Mótið fór fram í kyrrþey. Stefán Stefánsson og Skúli Skúlason stóðu sig best þeirra 18 para sem áttu heimangengt og hlutu þeir 57,8% skor í samtals 119 spilum. Eitt þeirra hefur spurst út.
Íslandsmeistararnir voru í NS. Vestur vakti á Tartan 2♠, Stefán sagði 2G (17-19), austur passaði og Skúli beit á jaxlinn og stökk í 6♣. Sögnin er í grimmara lagi, en Skúla leist ekki á 3G og ekki nokkur kjaftur lætur sér detta í hug að spila fimm í láglit í tvímenningi.
Útspilið var ♠K. Skúli drap, tók ♣Á síðan ♥ÁK og stakk hjarta með kóng. Hann fór næst inn á ♣D til að trompa hjartað frítt, læddi svo vel geymdum ♣2 inn á fjarkann og henti tígli í fríhjarta. Spilaði loks spaða. Og sjá – tían féll.
Tólf slagir.