— Morgunblaðið/Eggert
Fjölskyldum er boðið á ókeypis vísnatónleika í Salnum í dag kl. 13. Þeir eru liður í fjölskyldustundum Menningarhúsanna í Kópavogi á laugardögum. Að þessu sinni tengist stundin Vísnatónlistarhátíð í Tíbrá sem fram fer í kvöld.
Fjölskyldum er boðið á ókeypis vísnatónleika í Salnum í dag kl. 13. Þeir eru liður í fjölskyldustundum Menningarhúsanna í Kópavogi á laugardögum. Að þessu sinni tengist stundin Vísnatónlistarhátíð í Tíbrá sem fram fer í kvöld. Fram koma Guðrún Gunnarsdóttir, þjóðlagasveitin Draupnir, Aðalsteinn Ásberg, Þorgerður Ása og sænskir vísnatónlistarmenn.