Darko Bulatovic
Darko Bulatovic
Fjögur félög hafa bætt við sig nýjum, erlendum leikmanni fyrir komandi leiktíð í Pepsi-deild karla í knattspyrnu. KA samdi í gær við svartfellska vinstri bakvörðinn Darko Bulatovic. Sá er 27 ára og á að baki 63 leiki í efstu deild Serbíu.

Fjögur félög hafa bætt við sig nýjum, erlendum leikmanni fyrir komandi leiktíð í Pepsi-deild karla í knattspyrnu. KA samdi í gær við svartfellska vinstri bakvörðinn Darko Bulatovic. Sá er 27 ára og á að baki 63 leiki í efstu deild Serbíu. ÍA fær pólska varnarmanninn Robert Menzel sem lék með Podbeskidzie í næstefstu deild Póllands í vetur. Hann er 26 ára.

Víkingur Ó. fær til sín 22 ára Svía í vörnina, Mirza Mujcic, sem síðast lék með norska C-deildarliðinu Notodden. Grindavík samdi við miðjumanninn Milos Zeravica frá Serbíu, samkvæmt frétt Fótbolta.net, en hann varð Bosníumeistari á síðustu leiktíð. sindris@mbl.is