Amin Stevens
Amin Stevens
Amin Stevens úr Keflavík var í gær útnefndur besti leikmaður seinni hluta Dominos-deildar karla í körfubolta.

Amin Stevens úr Keflavík var í gær útnefndur besti leikmaður seinni hluta Dominos-deildar karla í körfubolta. Finnur Freyr Stefánsson hjá KR var valinn besti þjálfarinn, Hörður Axel Vilhjálmsson úr Keflavík besti varnarmaðurinn, og Þórir Guðmundur Þorbjarnarson úr KR besti ungi leikmaðurinn.

Stevens, Hlynur Bæringsson úr Stjörnunni, Ólafur Ólafsson úr Grindavík, Matthías Orri Sigurðarson úr ÍR og Jón Arnór Stefánsson úr KR voru valdir í úrvalsliðið. Stuðningsmenn ÍR voru valdir bestu stuðningsmenn umferða 12-22 en stuðningsmenn Tindastóls í umferðum 1-11.