Snæbjörg Snæbjarnardóttir, óperusöngkona, söngkennari og kórstjóri, fæddist á Sauðárkróki 30. september 1932. Hún lést á Landspítalanum 16. febrúar 2017.Foreldrar hennar voru Ólína Ingibjörg Björnsdóttir, f. 23. maí 1903, d. 13. október 1980, og Snæbjörn Sigurgeirsson, bakarameistari á Sauðárkróki, f. 22. mars 1886, d. 3. september 1932. Fósturfaðir Snæbjargar var Guðjón Sigurðsson, bakarameistari á Sauðárkróki, f. 3. nóvember 1908, d. 16. júní 1986. Systkini Snæbjargar, samfeðra, voru Ólöf, f. 1922, d. 1947, Svanfríður Guðrún (Gígja), f. 1925, d. 2015, Geirlaug, f. 1927, d. 1927, Sigurgeir, f. 1928, d. 2005. Systkini Snæbjargar, sammæðra, eru: Elma Björk, f. 1935, d. 1984, Birna, f. 1943, og Gunnar Þórir, f. 1945. Fyrri eiginmaður Snæbjargar var Páll Kr. Pétursson stýrimaður, f. 22.12. 1927, d. 28.4. 1988. Dóttir þeirra er Ólöf Sigríður Pálsdóttir, f. 18. nóvember 1953. Seinni eiginmaður Snæbjargar var Kaj A.W. Jörgensen kaupmaður, f. 8. mars 1928, d. 8. júní 2010. Börn þeirra eru: 1) Snæbjörn Óli Jörgensen, f. 2. júní 1964, kvæntur Önnu Maríu Elíasdóttur, f. 1968. Börn þeirra eru: Snæbjörg, f. 1990, dóttir hennar er Maríanna Erla, f. 2012, Harpa María, f. 1993, og Kaj Arnar, f. 1999. 2) Guðrún Birna Jörgensen, f. 24. mars 1970, gift Halldóri Þorsteini Ásmundssyni, f. 1971. Dóttir þeirra er Hildur Ása, f. 2002.

Snæbjörg byrjaði ung að læra á hljóðfæri hjá skagfirska tónskáldinu Eyþóri Stefánssyni og að syngja í kirkjukór Sauðárkrókskirkju. Hún stundaði söngnám hjá Sigurði Birkis, Maríu Markan, Stefáni Íslandi og Sigurði Demetz, en fór í frekara söngnám í Salzburg í Akademie für Musik und darstellende Kunst Mozarteum. Þaðan útskrifaðist hún með hæstu mögulega einkunn. Hún tók þátt í alþjóðlegri söngvakeppni skólans og í framhaldi söng hún með sinfóníuhljómsveit Salzburg. Eftir þetta bauðst henni að syngja Aidu í La Scala en ákvað að snúa heim. Snæbjörg söng víða einsöng ásamt því að syngja í Dómkórnum undir stjórn Páls Ísólfssonar. Hún tók einnig þátt í uppfærslum á hinum ýmsu leikverkum hjá Leikfélagi Skagfirðinga sem og í Þjóðleikhúsinu. Hún fór til Vínarborgar 1974 og sótti námskeið í söng og kórstjórn hjá Helenu Karusso. Snæbjörg stundaði söngkennslu og kórstjórn í tugi ára og stofnaði á sínum tíma Skagfirsku söngsveitina, barnakór ásamt Söngsveitina Drangey. Hún kom að stjórnun fleira kóra. Hún skipulagði söngdeild Tónlistarskóla Garðabæjar þar sem hún kenndi söng í yfir 30 ár ásamt í Söngskólanum í Reykjavík. Eftir að hún hætti í Tónlistaskólanum vegna aldurs, kenndi hún söng á Hjúkrunarheimilinu Mörk þar til í desember sl. Snæbjörg var virkur félagi í Oddfellowreglunni í 50 ár og gegndi þar ýmsum trúnaðarstörfum ásamt söngstörfum. Snæbjörg og Kaj ráku til fjölda ára Verslunina Snæbjörgu á Bræðraborgarstíg og Verslunina Skerjaver.

Útför Snæbjargar Snæbjarnardóttur fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, 3. mars 2017, og hefst athöfnin klukkan 15.

Haustið 1980 var ég ráðinn sem kennari við Tónlistarskóla Garðabæjar. Á fyrsta kennarafundinum lágu leiðir okkar Snæbjargar Snæbjarnardóttur saman, en hún hafði verið ráðinn til að koma á fót söngdeild við skólann. Hún var þá þegar með nokkra nemendur sem komnir voru áleiðis í náminu og þurftu kennslu á framhaldsstigi. Frá fyrstu tíð kom okkur vel saman og urðum við með tímanum miklir vinir.

Árið 1984 tók Gísli Magnússon við stöðu skólastjóra skólans og ég var ráðinn aðstoðar skólastjóri og yfirkennari. Ég vil meina að það tímabil sem fór í hönd hafi verið eitt framsæknasta tímabil skólastarfsins. Að hafa nemendur á efri stigum námsins gjörbreytti ímynd og ásýnd skólans. Við tókum upp reglulega kennslu í hliðargreinum framhaldnámsins og gáfum kost á að nemendur skólans gætu farið á tónlistarbraut og fengið metna áfanga til stúdentsprófs frá skólanum. Fyrir 1980 hafði aðeins einn nemandi útskrifast frá skólanum en þegar við Gísli tókum við höfðu 3 bæst í hópinn, tveir frá Snæju og einn frá Gísla. Þegar við Gísli létum af störfum í lok árs 1999 höfðu meir en 30 nemendur í viðbót útskrifast með 8. stig og tónleika. Skiptingin á þeim var nokkurn veginn jöfn á milli Gísla og Snæju.

Á þessum tíma vorum við með alls konar uppákomur og oft mjög glæsilega tónleika nemenda skólans. Við vorum einnig með kennaratónleika og stóðum fyrir öðru tónleikahaldi. Það eru þó tveir atburðir sem standa upp úr. Í  tilefni af 30 ára afmæli skólans árið 1996 fékk Gísli skólastjóri Hildigunni Rúnarsdóttur til að semja tónverk fyrir skólann. Úr varð heil ópera, Hnetu Jón sem flutt var í mars árinu áður. Texti ævintýrsins var eftir Rúnar Einarssonar föður Hildigunnar og verkefnið varð að samstarfsverkefni Tónlistarskólans, Barnakórs Garðabæjar og Myndlistarskóla Garðabæjar. 30 manna hljómsveit nemenda spilaði undir stjórn Berharðs Wilkinssonar, 40 börn í kórnum sungu með og Snæja skaffaði fimm söngvara í hlutverk, en einn leikari var fenginn til að leika aðal hlutverkið. Gagnrýnandi Morgunblaðsins, Ríkarður Ö. Pálsson, sá ástæðu til þess að skrifa um þetta þó það væri að vísu ekki venja á þessum síðum að gagnrýna skólatónleika, .... Hann hrósaði mjög þessu verki og sagði að það væri verðskulduð rós í hnappagat Hildigunnar. Um söngvarana sagði hann: .Á óvart kom hversu lipurt og hljómmikið sumir einsöngvararnir gátu sungið ....

Aðeins þremur árum seinna var sett upp annað stórvirki. Snæja hafði tekið þá ákvörðun að setja upp eins og lagði sig alla óperuna Brúðkaup Fígarós eftir W. A. Mozart. Hún byrjaði að kenna þetta verk haustið á undan og um áramót var byrjað að æfa. Hún fékk nokkra kennara skólans til að taka að sér hlutverk og var ég pússaður upp í það að leika Dr. Bartóló. Á engan er hallað þó sagt sé, að þau Benedikt Elfar sem Fígaró og Margrét Ásgeirsdóttir sem Súsanna fóru á kostum í hlutverkum sínum. Í þessu verki kom fram mesti styrkur Snæju, en það var að fá fólk til að gera hluti sem það hefði aldrei sjálft trúað að það gæti gert. Fengnir voru búningar að láni í Þjóðleikhúsinu og það var æft mjög stíft. Svo gerðist þetta sem er galdur leikhússins. Í atriðinu þar sem Dr. Bartóló og Marzelína  komast að því að Fígaró er í raun sonur þeirra sem hafði verið rænt mörgum árum fyrr small allt í einu allt saman. Við fórum öll að leika. Og þessir töfrar síuðust svo út í önnur atriði óperunnar þannig að úr varð ótrúlega glæsileg sýning. Það er betra að nota orð annarra til að lýsa þessu. Við fengum ekki formlega gagnrýni en Ingólfur Guðbrandsson skrifaði í Morgunblaðið þann 3. júní 1998 grein um þessa sýningu sem hann kallaði Listahátíð í Garðabæ. Ingólfur skrifaði: Áheyrendur í samkomusal Vídalínskirkju í Garðabæ urðu vitni að merkum menningarviðburði sl. föstudagskvöld, þegar söngdeild Tónlistarskóla Garðabæjar flutti hina vinsælu óperu Mozarts Brúðkaup Figarós í heilu lagi undir stjórn Snæbjargar Snæbjörnsdóttur yfirkennara við þvílíka hrifningu gesta að mörg atvinnuleikhús hefðu verið sæmd af slíkum undirtektum. - Söngkennsla á heimsmælikvarða - Snæbjörg Snæbjarnardóttir hefur unnið íslenskri söngmenningu svo mikið gagn með kennslu sinni að enginn getur komist hjá að viðurkenna árangur hennar, sem lýsir sér best í frammistöðu  nemenda hennar heima og erlendis, en þeir stefna hver af öðrum inn á svið þekktra óperuhúsa Evrópu. Hér sannast hið algilda, að varðar mest ... að undirstaða rétt sé fundin. Raddbeiting nemenda Snæbjargar bregst varla, þegar hún fær góðan, óspilltan efnivið. Röddin er lögð vel frammí og í efstu hæðir hljómsins. Fyrir bragðið berst röddin vel og áreynslulaust. Þetta einkenndi flutninginn á Brúðkaupi Figarós hjá nærri öllum flytjendum og gerði hann óvenju samstæðan. Ég held að fáir hafi gert sér grein fyrir, hve mikið var færst í fang, og þeim mun einstakari var árangurinn. Sannast hér sem jafnan, hvers virði góð tilsögn er og hvers virði er skóla að hafa frábærum kennurum á að skipa.

Snæja var mjög einstök sem kennari. Ég hef aldrei hvorki fyrr né síðar kynnst kennara sem lagði sig eins mikið fram við að ná árangri með nemendum sínum. Hún átti í þeim hvert bein og það voru ófáar stundirnar sem hún gaf þeim aukatíma. Þegar hún var sjötug langaði okkur vinum hennar og nemendum að halda tónleika henni til heiðurs. Það kom ekki til mála. Hún var sko ekki tilbúinn til þess að viðurkenna aldur sinn. Þegar hún varð 75 ár fengum við leyfi og við blésum til mikilla tónleika í Kirkjuhvoli í Garðabæ. Mér auðnaðist sá heiður að stjórna þessari samkomu. Þegar ég sá alla flóruna af þeim nemendum sem þar komu fram áttaði ég mig á einu. Þeir sem komu til að læra hjá henni komu á sínum eigin forsendum og hún vann það besta úr hverjum og einum hvað svo sem það var sem nemendurnir höfðu til að bera.

Það er ekki að spyrja að því, að þegar tvö stórveldi sigla á sömu leið getur komið til árekstra. Einhvern tímann líkaði Snæju ekki við einhverja ákvörðun sem ég tók og fórum við bæði í þagnarbindindi. Eftir einhvern tíma vorum við bæði búin að steingleyma því hvað hefði ollið því og ákváðum við þá að hætta þessum fíflagangi. Þetta varð bara til þess að treysta vináttu okkar enn meir og þetta gerðist ekki aftur.

Ég nota ennþá suma af gömlu frösunum hennar Snæju eins og t.d. það er víðar en hjá fleirum! Veislurnar sem slegnar voru upp, stundum af litlu tilefni, eru ógleymanlegar. Þá komu frasarnir: Borðiði!!! og: Fáið ykkur meira!!! Ég held að hefði ég verið í fæði hjá henni Snæju væri ég a.m.k. helmingi þyngri en ég er nú.

Eftir að ég hætti í Garðabænum lágu leiðir okkar Snæju ekki eins oft saman. Við töluðum stundum saman í síma og hittumst nokkrum sinnum. Rúmri viku fyrir andlát hennar heimsóttum ég, Ingibjörg Styrgerður kona mín og Ingibjörg Guðjónsdóttir söngkona og fyrrum nemandi okkar hana og áttum með henni mjög góðan dag. Við ræddum um heima og geima og áttum saman yndislega samverustund. Ég sagði henni m.a. að Fígaró ævintýrið væri eitt það skemmtilegasta sem ég hefði nokkurn tímann tekið þátt í og rifjuðum við það upp. Þegar við fórum sagði hún: Komiði fljótt aftur! Ekki datt okkur þá í hug hve stutt það væri að við stæðum yfir moldum hennar.

Ég kveð hér sanna og einlæga vinkonu sem lífgaði alltaf upp á tilveruna.

Smári Ólason.