Lestrarhestur. S-Allir
Norður | |
♠1074 | |
♥KD93 | |
♦ÁK9865 | |
♣-- |
Vestur | Austur |
♠9853 | ♠ÁKDG6 |
♥G | ♥85 |
♦32 | ♦D7 |
♣987543 | ♣ÁK106 |
Suður | |
♠2 | |
♥Á107642 | |
♦G104 | |
♣DG2 |
Suður spilar 6♥ dobluð.
Til eru tvær gerðir af spilurum – þeir sem reikna allt út og hinir sem láta tilfinninguna ráða för. Það er ljóst hvorum hópnum Steve Weinstein tilheyrir.
Weinstein var með spil suðurs í 16-liða úrslitum Vanderbilt og opnaði á 2♥, veikum. Bobby Levin stökk í 4♥ og Frakkinn Cedric Lorenzini í austur sagði 4♠. Levin barðist í 5♥, Lorenzini styrkdoblaði og Jean Quantin í vestur tók út í 5♠. Levin sá þá fyrir sér stuttan spaða hjá makker sínum og reyndi 6♥. Lorenzini doblaði og Quantin kom út með spaða.
Kit Woolsey sat við lyklaborðið á Bridgebase: „Ég geri ráð fyrir að sagnhafi svíni í tígli og fari einn niður.“ Fleiri spekingar samsinntu þessu og studdu með prósentureikningi um „laus sæti“. En Levin tók ekkert mark á tölfræðinni. Hann spilaði fyrst ♦G upp á ás. Og nokkru síðar ♦10 og stakk upp KÓNG!
Af hverju? Nú, hann bara „las“ Quantin.