Elli Grill
Elli Grill
„Hún er að fæðast, hún er tilbúin, bara verið að mastera hana. Ég býst við að hún komi út eftir tvær eða þrjár vikur,“ segir Elli Grill um væntanlega sólóplötu sína sem Alda Music, útgáfufélag Ólafs Arnalds, Sölva Blöndal o.fl., gefur út.

„Hún er að fæðast, hún er tilbúin, bara verið að mastera hana. Ég býst við að hún komi út eftir tvær eða þrjár vikur,“ segir Elli Grill um væntanlega sólóplötu sína sem Alda Music, útgáfufélag Ólafs Arnalds, Sölva Blöndal o.fl., gefur út. Platan verður fyrsta sólóplata Ella og mun bera titilinn Þykk fitan.

„Það er ekkert væmið drasl á henni, ég get lofað þér því,“ segir Elli og hlær illkvittnislega. Hermann segir að á plötu Ella verði að finna alvöru hipphopp og Elli bætir því við að platan verði „mjög ævintýraleg“.