Yfirhöfnum í fatahengi, bíllyklum og fleiru var stolið úr Bústaðakirkju í Reykjavík síðdegis á mánudag. Að sögn Pálma Matthíassonar sóknarprests er langt síðan svona hefur gerst í kirkjunni, en brögð voru að þessu fyrir nokkrum árum.

Yfirhöfnum í fatahengi, bíllyklum og fleiru var stolið úr Bústaðakirkju í Reykjavík síðdegis á mánudag. Að sögn Pálma Matthíassonar sóknarprests er langt síðan svona hefur gerst í kirkjunni, en brögð voru að þessu fyrir nokkrum árum. Kirkjan er nú vöktuð með myndavélabúnaði sem bægt hefur vágestum frá.

„Svona mál koma alltaf öðru hvoru,“ segir Heimir Ríkarðsson, lögreglufulltrúi hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. „Þjófar fara inn skóla, íþróttahús, þjónustumiðstöðvar og annars staðar þar sem er lítil gæsla og grípa þar yfirhafnir og fleira. Oft er líka eftir talsverðu að slægjast, því vandaðar kuldaúlpur geta verið 100 þúsund króna virði. Þetta er mjög dapurlegt.“

Heimir segir að ef einhverjum upplýsingum sé að byggja á í svona málum, til dæmis frásögnum vitna, upptökum úr öryggismyndavélum og svo framvegis, séu mál af þessum toga sett í ferli formlegrar rannsóknar. Stundum sé hinsvegar á litlu sem engu að byggja og og þá felli lögreglan málið niður. sbs@mbl.is