Einleikarinn Gagnrýnendur hafa hrósað túlkun Víkings Heiðars á etýðum Glass á nýja diskinum, segja hana persónulega, ljóðræna og kraftmikla.
Einleikarinn Gagnrýnendur hafa hrósað túlkun Víkings Heiðars á etýðum Glass á nýja diskinum, segja hana persónulega, ljóðræna og kraftmikla. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Víkingur Heiðar Ólafsson heldur sína fyrstu einleikstónleika í Eldborgarsal Hörpu á föstudagskvöldið kemur.

Einar Falur Ingólfsson

efi@mbl.is

Víkingur Heiðar Ólafsson heldur sína fyrstu einleikstónleika í Eldborgarsal Hörpu á föstudagskvöldið kemur. Tónleikana heldur hann í tilefni af útgáfu fyrstu plötu sinnar hjá hinni virtu útgáfu Deutsche Grammophon en á henni leikur Víkingur úrval etýða eftir tónskáldið Philip Glass. Með útgáfu plötunnar í janúar síðastliðnum hylltu einleikarinn og útgáfan tónskáldið á áttræðisafmælinu. Á tónleikunum flytur Víkingur verkin á diskinum og fær einnig til liðs við sig Strokkvartettinn Sigga við flutning á tveimur nýjum umritunum á verkum Glass.

Undanfarið hefur Víkingur Heiðar komið fram á mörgum tónleikum víða í Evrópu og leikið etýður Glass við mjög góðar viðtökur. Þá hefur verið fjallað um útgáfu disksins í fjölmiðlum víða um lönd og hafa dómar verið afar lofsamlegir. Á vef þýska blaðsins Die Welt segir til að mynda að Víkingur Heiðar sé aflgjafi klassískrar tónlistar á Íslandi um þessar mundir og hann sé boðberi „íslenskrar, norrænnar tónlistar“. Í fyrirsögn umsagnarinnar segir að þegar þessi píanóleikari eigi í hlut verði „tómið aldrei leiðinlegt“. Þá segir að Glass krefjist þess að flytjandinn gefi meira af sér en flest önnur tónskáld og Víkingur Heiðar skilji etýður hans fyrir það sem þær eru og gefi þeim lausan tauminn: „Þær eru list tímans þar sem gert er að leik að við – túlkendur og áheyrendur – breytumst við endurtekningu mynstra. Að þess vegna séu alls engar endurtekningar.“

Og rýnir franska dagblaðsins Le Monde líkir tilfinningunum í túlkun píanóleikarans við eldfjallahræringar, hrósar tækni hans í hástert og segir túlkunina afar persónulega. Áhorfendum sé boðið í ferðalag fullt af óvæntum uppákomum, lífskrafti og ljóðrænu.

Ævintýralegur tími

Víkingur staðfestir að tónleikahald undangenginna vikna hafi gengið vel. „Ég hélt eina „hreina“ tónleika með verkum Glass í Konzerthaus í Berlín og það var uppselt og mikil stemning. Annars hef ég undanfarið leikið verk eftir Glass og Bach saman, sem fer ótrúlega vel,“ segir hann og bætir við að hann hafi gætt þess að endurtaka sig ekki frá einum tónleikum til þeirra næstu.

„Það hefur gengið vel og þetta hefur verið ævintýralegur tími. Fólk virðist vera spennt fyrir því núna að hlusta á verk eftir Glass. Það er stemning fyrir þessari músík og margir hafa orð á því að þeir séu að koma aftur að henni eftir að hafa sett hana í dvala um tíma.

En þetta er fyrsta heila platan með tónlist eftir Glass sem Deutsche Grammophon gefur út í ein 20 ár. Margir harðkjarna klassískir áheyrendur undrast greinilega hvað það er mikið í þessari tónlist en margir hafa haft allt of einfalda mynd af honum sem listamanni.“

Um margar leiðir að velja

Í skrifum um diskinn tala margir rýnar um að Víkingur taki píanótónlist Glass afar persónulegum tökum, túlki hana og leiki til að mynda á allt annan hátt en Glass sjálfur.

„Tíminn vinnur alltaf með góðri tónlist,“ segir hann. „Og þegar tónlist býður upp á jafn marga möguleika og þessi, þá græðir tónlistin á tímanum sem líður og því að sífellt fleiri flytjendur komi að henni.

Jú, ég leik verkin á talsvert annan hátt en má heyra í fyrri upptökum. Það sýnir vel hvað það er um margar leiðir að velja. Upptakan er ein leið og svo legg ég mig eftir því að leika verkin öðruvísi í hvert sinn. Þegar maður leikur jafn mikið af ákveðnu efni þetta oft, þá finnst mér það mikilvæg áskorun að vera sífellt að endurhugsa verkin, að endurtaka mig ekki og ekki taka neinu sem gefnu. Það má til dæmis breyta tempói og þá öðlast verkin annað líf, þótt þetta sé áfram mjög konkret tónlist.“

Víkingur segist mjög ánægður með margt á nýja diskinum en hann njóti þess samt að þróa verkin áfram. „Ætli diskurinn sé ekki einhverskonar miðja í þessu ferli. Ég tók verkin öll upp á tveimur dögum í Hörpu í október en á föstudag rennur upp nýr dagur, þá er hálft ár liðið frá upptökunum og ég hef síðan leikið á mjög mörgum tónleikum!“

Þakklátt að segja frá Glass

Hann segist vissulega vera ánægður með þær góðu viðtökur sem diskurinn hefur fengið, þótt fólk eigi ekki að taka of mikið mark á dómum, góðum eða slæmum. „Mér finnst að fólk eigi bara að hlusta sjálft á tónlistina og vera með henni eða á móti! Ég átti annars von á því að einhverji yrði neikvæðari, því í klassíska heiminum hafa menn nokkuð skipst í fylkingar í afstöðu sinni til Glass og til þessa nýja einfaldleika sem þeir Arvo Pärt innleiða á áttunda áratugnum. En blaðaumfjöllun hefur verið mjög jákvæð, kannski breytist afstaðan til tónskálda þegar þau verða áttræð! Og mér þykir vænt um hve margir kveikja á því sem ég reyni að gera í túlkuninni, það er ekki sjálfgefið.“

Á tónleikunum á föstudagskvöldið hyggst Víkingur leika öll verkin sem eru á diskinum. „Og á milli verka mun ég segja frá sambandi mínu við Philip Glass og glímu minni við þessa tónlist. Það er svo þakklátt að segja fólki frá Glass því hugmyndafræði hans er svo áhugaverð.“