Byggt 2.947 íbúðir í fjölbýli eru í smíðum á höfuðborgarsvæðinu, 185 rað- og parhús og 123 einbýli.
Byggt 2.947 íbúðir í fjölbýli eru í smíðum á höfuðborgarsvæðinu, 185 rað- og parhús og 123 einbýli. — Morgunblaðið/Golli
Alls eru 3.255 íbúðir í byggingu á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt nýrri talningu Samtaka iðnaðarins (SI) og hefur þeim fjölgað um 10% frá í september. Færri íbúðir eru þó í byggingu í Reykjavík um þessar mundir en var fyrir hálfu ári. Núna eru samtals 1.

Alls eru 3.255 íbúðir í byggingu á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt nýrri talningu Samtaka iðnaðarins (SI) og hefur þeim fjölgað um 10% frá í september. Færri íbúðir eru þó í byggingu í Reykjavík um þessar mundir en var fyrir hálfu ári. Núna eru samtals 1.228 íbúðir í byggingu í borginni skv. talningu SI en þær voru 1.266 í september. Í Kópavogi hefur íbúðum í smíðum fjölgað frá í haust eða um 118 og í Garðabæ er núna verið að byggja 126 fleiri íbúðir en komu fram í talningu SI í september sl.

Þó að íbúðum í byggingu á höfuðborgarsvæðinu hafi fjölgað dugar það engan veginn til að mæta eftirspurn. Áætlað hefur verið að 1.600 til 1.800 nýjar íbúðir þurfi að bætast við á ári til að anna eftirspurninni og því til viðbótar þarf að mæta mikilli uppsafnaðri þörf á undanförnum árum. ,,Miðað við stöðuna í dag er spá okkar fram í tímann sú að það verði í fyrsta lagi eftir tvö ár sem fer að saxast á uppsafnaða þörf,“ segir Friðrik Á. Ólafsson, viðskiptastjóri byggingariðnaðar á mannvirkjasviði SI. omfr@mbl.is 6