Skjóldalur Verk eftir Rebekku Kühnis.
Skjóldalur Verk eftir Rebekku Kühnis.
Listasafnið á Akureyri auglýsti í janúar eftir umsóknum um þátttöku í Sumarsýningu safnsins sem stendur yfir dagana 10. júní – 27.
Listasafnið á Akureyri auglýsti í janúar eftir umsóknum um þátttöku í Sumarsýningu safnsins sem stendur yfir dagana 10. júní – 27. ágúst og bárust umsóknir frá 47 listamönnum og yfir 100 verk, en forsenda umsóknar var að listamenn byggju og/eða störfuðu á Norðurlandi eða hefðu tengingu við svæðið. Dómnefnd valdi verk eftir 21 listamann og listamennirnir sem taka þátt í sýningunni eru Aðalsteinn Þórsson, Arnar Ómarsson, Auður Lóa Guðnadóttir, Auður Ómarsdóttir, Árni Jónsson, Bergþór Morthens, Björg Eiríksdóttir, Brynhildur Kristinsdóttir, Erwin van der Werve, Helga Björg Jónasardóttir, Hertha Richardt Úlfarsdóttir, Hildur Ása Henrýsdóttir, Jónborg Sigurðardóttir, Jónína Björg Helgadóttir, Karl Guðmundsson, Magnús Helgason, Rebekka Kühnis, Sara Björg Bjarnadóttir, Sigríður Huld Ingvarsdóttir, Snorri Ásmundsson og Svava Þórdís Baldvinsdóttir Júlíusson. Ketilhúsið mun hýsa sýninguna sökum framkvæmda í aðalsýningarými Listasafnsins.