Víkingur Heiðar Ólafsson
Víkingur Heiðar Ólafsson
Nýr geisladiskur Víkings Heiðars Ólafssonar með píanóverkum eftir Philip Glass er hástökkvari vikunnar á þýsku vinsældalistunum. Stökk hann í gær beint upp í fjórða sæti klassíska listans þar í landi. Gagnrýnendur hafa fjallað lofsamlega um diskinn.

Nýr geisladiskur Víkings Heiðars Ólafssonar með píanóverkum eftir Philip Glass er hástökkvari vikunnar á þýsku vinsældalistunum. Stökk hann í gær beint upp í fjórða sæti klassíska listans þar í landi.

Gagnrýnendur hafa fjallað lofsamlega um diskinn. Í Die Welt segir að þegar þessi píanóleikari eigi í hlut verði „tómið aldrei leiðinlegt“. Víkingur skilji etýður Glass og gefi þeim lausan tauminn. Og rýnir Le Monde líkir tilfinningunum í persónulegri túlkuninni við eldfjallahræringar. Víkingur Heiðar leikur verkin á diskinum í Eldborg á föstudag. 30