<strong>Á sjó</strong> Vestmannaey var smíðuð í Póllandi 2007 og einnig systurskipið Bergey.
Á sjó Vestmannaey var smíðuð í Póllandi 2007 og einnig systurskipið Bergey.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Eyjaskipin Vestmannaey og Bergey hafa aflað vel frá því að þau komu til landsins fyrir tíu árum. Birgir skipstjóri á Vestmannaey segir nóg vera af fiski og vertíðarþorskinn fyrr á ferðinni en oftast áður.

Um þessar mundir eru liðin 10 ár frá því að Vestmannaey VE 444 landaði sínum fyrsta farmi í Vestmannaeyjum. Eigandi skipsins er útgerðarfélagið Bergur - Huginn ehf., sem er dótturfyrirtæki Síldarvinnslunnar hf. Afli Vestmannaeyjar á þessum áratug er rúmlega 33 þúsund tonn og aflaverðmætið rúmlega 8,5 milljarðar króna. Skipstjóri frá upphafi hefur verið Birgir Þór Sverrisson.

Á heimasíðu Síldarvinnslunnar er rætt við Birgi, en skipið var þá á ýsuveiðum á Síðugrunni og sagði Birgir að ágætlega hefði gengið. „Annars hafa aflabrögðin verið ævintýralega góð frá því að verkfallinu lauk. Hjá okkur hafa veiðiferðirnar gjarnan verið einn og hálfur til tveir sólarhringar og sá tími hefur dugað okkur til að fá 60-90 tonn. Við höfum komið með fullan bát aftur og aftur. Hjá okkur er aflinn blandaður, en oft er uppistaðan þorskur. Það virðist vera nóg af fiski og vertíðarþorskurinn gekk á sín helstu svæði fyrr en oftast áður. Frá verkfalli höfum við fiskað tæplega 900 tonn og aflaverðmætið er um 175 milljónir króna. Þetta hefur verið veisla,“ sagði Birgir.

Vestmannaey var smíðuð í Póllandi árið 2007 og er svonefndur þriggja mílna bátur, 291 tonn að stærð og 29 metrar að lengd. Systurskip Vestmannaeyjar, Bergey VE 544, kom síðan nýtt til landsins í ágústmánuði sama ár. Þegar Vestmannaey og Bergey komu til landsins urðu skipin í flota fyrirtækisins þrjú, en fyrir var Smáey VE 144. Smáey var síðan seld árið 2012.

Vel lukkað skip í alla staði

Þegar Birgir er spurður út í skipið og þann ágæta árangur sem náðst hefur á því á sl. 10 árum segir hann Vestmannaey hafi reynst afburða vel frá upphafi. „Skipið er frábært og það hefur fiskast vel á það frá fyrsta degi. Þetta er gott sjóskip, vinnuaðstaða um borð er góð og lestarrýmið gott. Þá er skipið afar hagstætt í rekstri. Í stuttu máli sagt er þetta vel lukkað skip í alla staði,“ sagði Birgir að lokum.

Systurskip Vestmannaeyjar, Bergey, hóf veiðar um fimm mánuðum á eftir Vestmannaey. Útgerð þess skips hefur verið svipuð og systurskipsins og á það hefur ávallt aflast vel. Um þessar mundir er afli Bergeyjar frá upphafi um 30.000 tonn og aflaverðmæti tæplega átta milljarðar króna. Skipstjóri á Bergey sex fyrstu árin var Sigurður Guðbjörn Sigurjónsson en þegar hann fór í land tók Jón Valgeirsson við. Jón hafði áður verið stýrimaður á skipinu, að því er fram kemur á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

aij@mbl.is