Sjaldan ganga sambönd alveg áfallalaust fyrir sig og á tímabili, þegar þau Valur voru að byrja að kynnast, var Ilmur ekki viss um að hann væri rétti maðurinn fyrir hana.
Sjaldan ganga sambönd alveg áfallalaust fyrir sig og á tímabili, þegar þau Valur voru að byrja að kynnast, var Ilmur ekki viss um að hann væri rétti maðurinn fyrir hana. „Ég er svolítið áhættusækin að eðlisfari og fannst hann kannski vera full þægilegur og ekki nægilega miklar sveiflur í gangi þessa fyrstu mánuði sem við höfðum verið að rugla saman reytum. Ég heimsótti hann því til að ræða það að mér þætti sambandið ekki vera að virka,“ segir hún. „Nema hvað þegar ég kem heim til Vals þá lætur hann nægja að segja „hæ“ og fer svo að lesa Moggann í rólegheitum, alveg sultuslakur, með engar áhyggjur af þessari konu sem var komin til hans, og fann ekki til nokkurar skyldu til að sinna henni neitt. Einhvern veginn fannst mér þetta nógu kúl hjá honum til að þetta yrði ekki dagurinn til að enda sambandið.“