Hof ásatrúarmanna rís í Öskjuhlíð.
Hof ásatrúarmanna rís í Öskjuhlíð. — Morgunblaðið/Golli
„Stjórnmálahreyfingar og fjármálastofnanir hafa verið duglegar að hirða til sín þekktari nöfn goðafræðinnar,“ segir Hilmar Örn Hilmarsson, allsherjargoði Ásatrúarfélagsins, og biðlar því til fólks að senda hugmyndir að nafni á nýju hofi...
„Stjórnmálahreyfingar og fjármálastofnanir hafa verið duglegar að hirða til sín þekktari nöfn goðafræðinnar,“ segir Hilmar Örn Hilmarsson, allsherjargoði Ásatrúarfélagsins, og biðlar því til fólks að senda hugmyndir að nafni á nýju hofi félagsins sem nú rís við rætur Öskjuhlíðarinnar. „Ég vona að almenningur taki við sér og hjálpi okkur að finna hofinu nafn en við höfum tæpt ár til stefnu.“