Nýstárlegt skip Engey kom til landsins í janúar og vakti þá athygli fyrir nýstárlegt útlit. Formleg móttökuathöfn verður við Norðurgarð í dag.
Nýstárlegt skip Engey kom til landsins í janúar og vakti þá athygli fyrir nýstárlegt útlit. Formleg móttökuathöfn verður við Norðurgarð í dag. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
Engey RE 91, nýr ísfisktogari HB Granda, kemur til hafnar í Reykjavík í dag frá Akranesi þar sem sjálfvirku lestarkerfi ásamt búnaði á vinnsludekki var komið fyrir í skipinu. Samkvæmt upplýsingum frá Granda er búnaðurinn sá fyrsti sinnar tegundar.

Engey RE 91, nýr ísfisktogari HB Granda, kemur til hafnar í Reykjavík í dag frá Akranesi þar sem sjálfvirku lestarkerfi ásamt búnaði á vinnsludekki var komið fyrir í skipinu.

Samkvæmt upplýsingum frá Granda er búnaðurinn sá fyrsti sinnar tegundar. Fyrirtækið Skaginn 3X hefur hannað, þróað og smíðað á Akranesi og á Ísafirði. Búnaðurinn muni stórbæta vinnuumhverfi sjómanna um borð auk þess sem hann muni auka afkastagetu skipsins og hámarka virði afurða úr afla þess.

Engey kom til landsins 25. janúar sl. að lokinni 15 sólarhringa siglingu frá Celiktrans-skipasmíðastöðinni í Istanbúl í Tyrklandi þar sem skipið var smíðað. Nautic ehf. sá um hönnun skipsins. Samtals eru klefar fyrir 17 manns um borð í skipinu, 15 eins manns klefar og einn tveggja manna klefi. Móttökuathöfn verður við Norðurgarð í Reykjavíkurhöfn klukkan 14 í dag. Engey verður síðan almenningi til sýnis á morgun, laugardag, frá kl. 13-16. Reiknað er með að Engey fari í sína fyrstu veiðiferð í lok apríl.