Listamaðurinn Ísak Óli Sævarsson.
Listamaðurinn Ísak Óli Sævarsson.
Ísak Óli Sævarsson opnar sýninguna Tinni í túninu heima í Listasal Mosfellsbæjar á morgun, laugardag, kl. 14.
Ísak Óli Sævarsson opnar sýninguna Tinni í túninu heima í Listasal Mosfellsbæjar á morgun, laugardag, kl. 14. „Þar mun Ísak Óli sýna tugi af Tinnamyndum sem hann hefur málað undanfarin ár, en Ísak Óli er að öllum líkindum manna fróðastur hérlendis um Tinnabækurnar,“ segir í tilkynningu frá skipuleggjendum. Sýningin verður opin til 13. maí.