Marengs 6 eggjahvítur 300 g sykur 3 msk. kakó 150 g dökkt súkkulaði Súkkulaði 4 eggjarauður 100 g flórsykur 150 g dökkt súkkulaði Rjómablanda 500 ml rjómi 2 msk.
Marengs

6 eggjahvítur

300 g sykur

3 msk. kakó

150 g dökkt súkkulaði

Súkkulaði

4 eggjarauður

100 g flórsykur

150 g dökkt súkkulaði

Rjómablanda

500 ml rjómi

2 msk. flórsykur

Toppur

jarðarber og rifið súkkulaði til skrauts

Hitið ofninn í 150 gráður (með blæstri) og setjið smjörpappír á tvær bökunarplötur. Myndið tvo jafn stóra hringi á smjörpappírinn.

Stífþeytið eggjahvíturnar og blandið svo sykrinum rólega saman við, smátt og smátt í einu. Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði og kælið. Blandið kakó saman við og hrærið vel. Blandið bræddu súkkulaði saman við og hrærið léttilega með sleif. Setjið marengsinn á bökunarplöturnar og myndið tvo jafnstóra hringi. Bakið marengsinn í um 1 klst. og 15 mínútur eða þar til marengsinn er alveg þurr viðkomu. Marengsinn er mjög brothættur. Kælið botnana alveg áður en þið setjið á þá.

Súkkulaði- og rjómablanda

Þeytið eggjarauður ásamt flórskyri þar til blandan verður ljós og létt. Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði og kælið. Blandið því saman við og hrærið varlega með sleif. Setjið súkkulaðið á báða botnana. Þeytið rjómann þar til hann er orðinn stífur og stendur, passið ykkur þó að þeyta hann ekki of mikið. Blandið flórsykri saman við og hrærið saman með sleif. Setjið rjómann á annan botninn, setjið hinn ofan á og setjið restina af rjómanum ofan á toppinn. Skerið niður jarðarber, eða þau ber sem þið viljið heldur og setjið ofan á rjómann. Skreytið með súkkulaðispónum.

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir / gottimatinn.is