Gaman Stúlka í eggjaleit úti í Viðey.
Gaman Stúlka í eggjaleit úti í Viðey.
Páskaeggjaleit fyrir börn verður í dag úti í Viðey, en leitin sú er fjölskylduvænn leikur úti í náttúrunni. Leikurinn gengur út á það að finna sem flest lítil páskaegg, en einnig verða nokkrir stærri vinningar fyrir þá sem finna sérstaklega merkt egg.

Leikurinn verður ræstur kl. 13:30 við Viðeyjarstofu en siglt verður frá Skarfabakka kl. 13.15. Þátttakendur geta slegist í hópinn síðar, en leikurinn gengur þó út á þá meginreglu að „fyrstur kemur, fyrstur fær“ en þó þannig að hófs sé gætt svo sem flestir fái egg. Afmörkuð verða sérstök leitarsvæði, þar á meðal eitt fyrir yngri kynslóðina (6 ára og yngri).

Í Viðeyjarstofu verður hægt að kaupa sér hressingu fyrir eða eftir leitina. Einnig er nestisaðstaða á bak við Viðeyjarstofu.

Viðeyjarferjan siglir samkvæmt vetraráætlun um helgar og mælt er með að gestir kaupi miða í ferjuna fyrirfram á elding.is til að forðast langar biðraðir. Ekkert þátttökugjald er í páskaeggjaleitinni.