Estrid Brekkan
Estrid Brekkan
Ekki er til skrá yfir þann fjölda Íslendinga sem býr í Stokkhólmi en á Facebook-síðu sem heitir Íslendingar í Stokkhólmi eru rúmlega 2.000 manns skráðir. Segir Estrid það vera helstu heimildina um fjöldann.

Ekki var búið að gefa út upplýsingar um fórnarlömb árásarinnar í gærkvöldi en ekki lítur út fyrir að Íslendingar séu meðal þeirra, að sögn Estridar. „Við vorum í sambandi við lögregluna í dag [gær] og fengum þær upplýsingar að ef það kæmi í ljós að útlendingar væru meðal látinna eða slasaðra tilkynnti lögreglan það strax til sænska utanríkisráðuneytisins, sem hefði þá samband við viðkomandi sendiráð. Við höfum ekki heyrt neitt þaðan og við vonum að við fáum ekki neitt slíkt símtal.“