Föst leikatriði. N-NS
Norður | |
♠Á96 | |
♥K10 | |
♦ÁD7 | |
♣ÁD1043 |
Vestur | Austur |
♠D8 | ♠G5 |
♥98743 | ♥652 |
♦8654 | ♦G103 |
♣K9 | ♣87652 |
Suður | |
♠K107432 | |
♥ÁDG | |
♦K92 | |
♣G |
Suður spilar 7♠.
Í fótbolta fær lakara liðið sín bestu tækifæri til að skora í „föstum leikatriðum“ – til dæmis upp úr aukaspyrnum og löngum innköstum nærri vítateig. Undirmáls-slemmur eru slík tækifæri við spilaborðið.
Með nútíma sagntækni er tiltölulega einfalt mál að komast að veikleikanum í spaðalitnum. Roman-lykilspilaspurningin mun leiða í ljós í fyllingu tímans að drottningin er fjórða úti og þá gefast menn upp á alslemmuleit. Fyrirframlíkur á 2-2 legu eru 40%, og þó að tían lyfti vinningslíkum upp í 46% dugir það ekki til að brjóta áhættumúrinn. Alslemma þarf að vera 56% til að vega salt, svo þetta telst vera vont veðmál fyrir hreintrúarmenn. Fyrir veikari sveitina er þetta hins vegar kjörið tækifæri til að skora grísamark.
Alslemma var aðeins sögð á fjórum borðum af 40 á nýliðnu Íslandsmóti. Sennilega vilja menn síður gangast við því að tilheyra „veikari sveitinni“.