— Morgunblaðið/Ófeigur
Ég vil biðja ökumenn að sýna okkur gangangi vegfarendum tillitssemi í vætutíðinni sem nú ríkir. Ég bið þá að aka gætilega þar sem pollar eru á götum.

Ég vil biðja ökumenn að sýna okkur gangangi vegfarendum tillitssemi í vætutíðinni sem nú ríkir. Ég bið þá að aka gætilega þar sem pollar eru á götum. Ég varð fyrir því að ökumaður ók ógætilega yfir poll og eftir stóðum við barnabarn mitt, á leikskólaaldri, holdvot á gangstéttinni, helst til ósátt.

Sýnum tillitssemi og aðgát í umferðinni.

Hulda Guðmundsdóttir.

Netverslun og vöruhólf

Netviðskipti verða sífellt algengari. Einn þáttur í kaupferlinu gæti verið heimsendingarþjónusta og afhending vöru þó að kaupandi sé ekki viðstaddur. Einföld lausn er að hafa til staðar vöruhólf fyrir heimsendar vörur, þar sem vöruflutningsaðili gæti skilið vöruna eftir á öruggum stað ekki ósvipað og pósthólf eru notuð. Einn kostur við netverslun er tímasparnaður og vöruhólf í heimahúsum gæti stuðlað að því.

Kristján.