„Það er forgangsatriði hjá okkur að reyna að ná að greiða fólki laun,“ segir Valdimar Birgisson, framkvæmdastjóri Fréttatímans, en tæpur tugur starfsmanna þar hefur enn ekki fengið greidd laun fyrir síðasta mánuð.

Unnið er að því að endurskipuleggja fyrirtækið, sem hefur verið í rekstrarvanda frá því í desember á síðasta ári. Valdimar segist ekki geta sagt til um hvort samningar hafi náðst um helgina. Í gær var ekki útlit fyrir að starfsfólk myndi mæta til vinnu í dag, mánudag. Þá er ekki líklegt að blaðið komi út fyrir páska, en stefnt er að útgáfu þess eftir páska.