Svíþjóð Látinna var minnst í gær.
Svíþjóð Látinna var minnst í gær. — AFP
Rakhmat Akilov, 39 ára gamall Úsbeki sem er grunaður um að hafa verið undir stýri vöruflutningabílsins sem ekið var inn í mannfjölda í Stokkhólmi á föstudag, hefur játað verknaðinn að sögn sænska fjölmiðilsins Expressen .

Rakhmat Akilov, 39 ára gamall Úsbeki sem er grunaður um að hafa verið undir stýri vöruflutningabílsins sem ekið var inn í mannfjölda í Stokkhólmi á föstudag, hefur játað verknaðinn að sögn sænska fjölmiðilsins Expressen . Samkvæmt miðlinum hefur Akilov hreykt sér af hryðjuverkinu við yfirheyrslur rannsóknarlögreglumanna. Hann mun hafa sagt að hann sé sá sem framdi ódæðið, að hann sé „ánægður með það sem hann hafi gert“ og að honum hafi „heppnast það sem hann ætlaði sér,“ segir í Expressen . Fjórir létust í árasinni, þeirra á meðal 11 ára sænsk stúlka. 15