Í Englandi voru ekki haldnar neinar skrár yfir hvenær Old English Sheepdog-tegundin varð til en elstu heimildina um slíka hunda er að finna í málverki af hundategundinni eftir Gainsborough frá 1771.
Í Englandi voru ekki haldnar neinar skrár yfir hvenær Old English Sheepdog-tegundin varð til en elstu heimildina um slíka hunda er að finna í málverki af hundategundinni eftir Gainsborough frá 1771. Samkvæmt The American Kennel Club, sem sér um rannsóknir og skráningu hunda í Bandaríkjunum, eru hundarnir orkumiklir og fullir af gleði. Þá eiga þeir það til að reyna að smala fólki og hlutum saman ef tækifæri gefst. Hundarnir eru oft notaðir í ýmsar keppnir s.s. þrautakeppnir, keppni í hlýðni eða smölunarkeppni.