Heimili Mikil uppsöfnuð þörf er á íbúðarhúsnæði hér á landi.
Heimili Mikil uppsöfnuð þörf er á íbúðarhúsnæði hér á landi. — Morgunblaðið/Golli
Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Mikil fjölgun ferðamanna síðustu ár hefur leitt til þess að eftirspurn eftir íverustöðum hefur aukist mjög.

Kristján H. Johannessen

khj@mbl.is

Mikil fjölgun ferðamanna síðustu ár hefur leitt til þess að eftirspurn eftir íverustöðum hefur aukist mjög. Á sama tíma og ferðamönnum hefur fjölgað um 80% á tveimur árum hefur framboð á hótelgistirýmum ekki aukist nema um 40%. Sækja þeir því í auknum mæli í heimagistingu og er það talið hluti þess vanda sem nú er á húsnæðismarkaði hér á landi.

Kemur þetta fram í greiningu Íbúðalánasjóðs á vöntun á húsnæðismarkaði. Er þar bent á að Airbnb-skráningum hefur fjölgað um ríflega 1.000 hér á landi á um það bil hálfu ári, en í lok febrúar voru alls 5.820 einingar á skrá til leigu, þar af voru um 4.900 heilar íbúðir.

Í endurskoðaðri hagspá hagdeildar Alþýðusambands Íslands (ASÍ) segir að viðvörunarbjöllur séu farnar að hringja á húsnæðismarkaði vegna viðvarandi skorts á húsnæði og full ástæða sé til viðbragða að hálfu stjórnvalda. Veltir ASÍ því upp hvort ekki sé þörf á því að takmarka leigu á heimagistingu til ferðamanna.

„Það sem áður var íbúðarhúsnæði fer nú í stórum mæli í útleigu til ferðamanna. Okkur finnst ástæða til að skoða hvort ekki eigi að setja enn frekari takmarkanir á þetta og liðka þannig fyrir á húsnæðismarkaði,“ segir Henný Hinz, deildarstjóri hagdeildar Alþýðusambandsins.

„Við teljum afar brýnt að hraða uppbyggingu leiguíbúða í nýja almenna íbúðakerfinu enn frekar,“ segir Henný, en ASÍ vill fjölga íbúðum um 1.000 á ári næstu árin.