Leysibendli var beint að TF-GNA, þyrlu Landhelgisgæslunnar, þegar hún var á flugi yfir íbúabyggð í Reykjavík í fyrrakvöld, en þyrlan var á leið í útkall þegar atvikið varð.
Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir að geislanum hafi verið beint á vinstri hlið vélarinnar í stutta stund og truflaði hann flugið því lítið.
Áhöfn þyrlunnar hafi hins vegar borið saman um að veruleg hætta hefði geta skapast hefði geislinn hitt á framrúðuna og blindað flugmennina.
Það var á níunda tímanum í fyrrakvöld sem stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst beiðni frá lækni í Vestmannaeyjum um að þyrla sækti þangað sjúkling, en vegna lélegs skyggnis í Eyjum var ekki unnt að senda þangað sjúkraflugvél.
Laust fyrir klukkan tíu fór þyrlan TF-GNA í loftið og var leysibendlinum beint að henni stuttu síðar. TF-GNA lenti á Vestmannaeyjaflugvelli um fimmtíu mínútum eftir brottför frá höfuðborginni en þar beið sjúkrabíll með sjúklinginn.
Þyrlan lagði aftur af stað til Reykjavíkur klukkan ellefu og lenti hún á Reykjavíkurflugvelli upp úr hálftólf. Þaðan var sjúklingurinn fluttur á Landspítalann á Hringbraut.
Í tilkynningunni kemur fram að þetta hafi verið í fimmta sinn á þessu ári sem Landhelgisgæslan sinnir sjúkraflugi til Vestmannaeyja.