Gunnar Andrésson
Gunnar Andrésson
Líklegt er talið að Gunnar Andrésson hafi stýrt karlaliði Gróttu í síðasta sinn í gærkvöldi þegar liðið tapaði fyrir FH, 31:20, í 8 liða úrslitum Íslandsmóts karla í handknattleik og féll þar með úr keppni.

Líklegt er talið að Gunnar Andrésson hafi stýrt karlaliði Gróttu í síðasta sinn í gærkvöldi þegar liðið tapaði fyrir FH, 31:20, í 8 liða úrslitum Íslandsmóts karla í handknattleik og féll þar með úr keppni. Heimildir Morgunblaðsins herma að næsta víst sé að Gunnar þjálfi ekki Gróttu á næsta keppnistímabili. Hann hefur verið þjálfari Gróttu síðustu þrjú keppnistímabil. Gunnar vildi ekki tjá sig um framhaldið við Morgunblaðið í gærkvöld, sagði það skýrast á næstu dögum. iben@mbl.is