Vaðlaheiðargöng hf. hafa samið við íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Computer Vision ehf. um að greina umferð ökutækja í báðar áttir á þjóðveginum á Svalbarðsströnd. Þetta verður gert í eitt ár til undirbúnings því að aðstandendur ganganna setji upp gjaldskrá og ákveði hvernig staðið skuli tæknilega að innheimtu veggjalds í Vaðlaheiðargöngum.
Settar verða upp myndavélar tengdar hugbúnaði og ökutækjaskrá til að „lesa“ skráningarnúmer bíla sem fram hjá er ekið. Þannig má fá upplýsingar um heildarfjölda ökutækja á tilteknu tímabili, sundurliðun tegunda ökutækja eftir þyngd, sundurliðun á búsetu eigenda eftir póstnúmerum, fjölda bílaleigubíla og hvaða ökutæki tilheyra fyrirtækjum og hver eru í einkaeigu.
Í fréttatilkynningu segir að meðferð upplýsinga sé í samræmi við kröfur Persónuverndar og Bifreiðaskrár þar að lútandi. Sett verða upp upplýsingaskilti við veginn að fyrirmælum Persónuverndar til að vekja athygli vegfarenda á upplýsingasöfnuninni og tilgangi hennar.
Ekki hefur verið samið um framkvæmd gjaldheimtunnar.