Íbúðalánasjóður hefur samið við Félag fasteignasala (FF) um áframhaldandi sölu á eignum sjóðsins en félagið kemur fram fyrir hönd félagsmanna sinna sem eru löggiltir fasteignasalar um land allt.
Í tilkynningu segir að félagsmenn FF hafi selt hátt í 3.000 eignir fyrir sjóðinn á grundvelli samstarfssamnings síðustu sex árin, en hann felur í sér að allir löggiltir fasteignasalar á landinu geta unnið fyrir sjóðinn og fara eignir því í sölu á fasteignasölum um land allt.
Frá því að samstarf Íbúðalánasjóðs og FF hófst árið 2011 hafa 2.880 eignir verið seldar og fasteignasalar hafa gert yfir 11.000 verðmöt fyrir sjóðinn. Söluvirði eignanna er um 40 milljarðar króna.