Icelandair er meðal 10 fremstu flugfélaga Evrópu að mati neytenda á TripAdvisor, stærsta ferðavefs í heimi. Icelandair fær titilinn „2017 TripAdvisor Travelers' Choice“ í flokki evrópskra flugfélaga.
Icelandair er meðal 10 fremstu flugfélaga Evrópu að mati neytenda á TripAdvisor, stærsta ferðavefs í heimi. Icelandair fær titilinn „2017 TripAdvisor Travelers' Choice“ í flokki evrópskra flugfélaga. „Þetta er sterk viðurkenning af því að hún kemur beint frá viðskiptavinum í gegnum þennan stóra vef, sem allir þekkja, og heiður fyrir okkur að lenda í þessum flokki fremstu flugfélaga Evrópu,“ segir Helgi Már Björgvinsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair. Vefurinn fær 390 milljón heimsóknir á mánuði, en viðurkenning Icelandair byggir m.a. á umsögnum viðskiptavina Icelandair á 12 mánaða tímabil.