Carrie Fisher
Carrie Fisher
Todd Fisher, bróðir leikkonunnar Carrie Fisher sem lést í fyrra, hefur staðfest að upptökur með systur hans verði notaðar fyrir næstu kvikmynd í Stjörnustríðs-bálkinum, þeirra níundu í röðinni.
Todd Fisher, bróðir leikkonunnar Carrie Fisher sem lést í fyrra, hefur staðfest að upptökur með systur hans verði notaðar fyrir næstu kvikmynd í Stjörnustríðs-bálkinum, þeirra níundu í röðinni. Todd og dóttir Fisher, Billie Lourd, gáfu fyrirtækjunum Disney og Lucasfilm sem framleiða myndina, leyfi fyrir því að nota upptökurnar. Carrie Fisher lék Lilju prinsessu í Stjörnustríði og segja Todd og Lourd að þeim hafi ekki þótt annað hægt en að gefa leyfi fyrir því að myndefnið væri notað því Carrie hafi verið mjög mikilvæg persóna í myndunum.