Baksvið
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Flestar bílasölur eru fullar af notuðum bílum á of háu verði. Þetta segir Guðfinnur S. Halldórsson hjá Bílasölu Guðfinns en hann hefur verið á markaðnum í rúm 48 ár. Segir hann að ástandið hafi aldrei verið með þeim hætti sem nú er.
„Það er ljóst að verð á notuðum bílum þarf að lækka meira en það hefur gert og þá í samhengi við lægra verð á nýjum bílum. Það er hægt að taka dæmi af Toyota Yaris. Það er hægt að fá nýjan slíkan bíl fyrir 1.900 þúsund krónur. Þá gengur ekki að fólk sé að reyna að fá 700-800 þúsund fyrir Yaris frá árinu 2006.“
Óraunhæfar verðhugmyndir
Segist hann hafa ákveðinn skilning á því að fólk vilji fá sem hæst verð fyrir bílinn sinn en ekki gangi að setja óraunhæfan verðmiða á söluvöruna, þá muni hún einfaldlega ekki ganga út.„Ég hef einfaldlega þurft að vísa fólki frá vegna óraunhæfra verðhugmynda. Ég get bara ekki tekið bílastæði undir bíla sem eru á slíkum prísum að það er víst að þeir munu bara alls ekki seljast,“segir guðfinnur.
Guðfinnur segir að það séu fyrst og fremst tvær ástæður fyrir hinu mikla framboði á markaðnum nú. Í fyrsta lagi sé það mikill innflutningur á bílum í tengslum við mikil og aukin umsvif bílaleigna og að of gamlir bílar séu í umferð.
„Það er ágæt þumalputtaregla að markaðurinn þurfi 10 til 15 prósent endurnýjun á ári. Það þýðir að ef það eru 200 þúsund bílar á markaðnum þá þurfi 20-30 þúsund nýja bíla á ári. Það er svipað og verið er að flytja inn núna þó mjög stór hluti af því fari beint í bílaleigurnar og komi svo inn á markaðinn sem mikið eknir bílar. Hins vegar verður framboðið svona mikið því meðalaldurinn á flotanum er ekki að lækka nægilega mikið.“
Bílaleigur skekkja markaðinn
Hann segir að mikill bílainnflutningur af hálfu bílaleigna sé farinn að skekkja markaðinn verulega.„Þær hafa haldið uppi innflutningnum síðustu árin og það er hætt við að markaðurinn nái ekki jafnvægi fyrr en þær finna aðrar leiðir til að þjónusta sína viðskiptavini. Það gæti til dæmis gerst með því að þær flyttu inn bíla á útlenskum númerum og leigðu út yfir sumarmánuðina en að sömu bílar færu svo úr landi þegar vertíðinni er lokið,“ segir Guðfinnur.
Samkvæmt Árbók bílgreina sem Bílgreinasambandið gefur út árlega var meðalaldur fólksbifreiða á Íslandi 12,5 ár í lok árs 2016 og hafði þá lækkað úr 12,7 árum frá árinu á undan. Þar kemur fram að íslenski bílaflotinn sé talinn gamall í alþjóðlegum samanburði. Þá er þar einnig bent á að fjöldi þeirra bíla sem eru 20 ára og eldri hafi aukist um 34% milli áranna 2011 og 2016.