„Okkur fannst við vera sviknir um sigurinn í síðasta leik. Mér fannst tapið í Grindavík verulega ósanngjarnt og við sýndum stórt hjarta að koma til baka eftir þau vonbrigði,“ sagði Dagur Kár Jónsson við Morgunblaðið eftir að Grindavík vann KR 91:86 á útivelli í þriðja úrslitaleik liðanna um Íslandsmeistaratitil karla í körfuknattleik í gærkvöld.
„Við fylgdum okkar leikplani allan leikinn og þegar þeir gerðu áhlaup á okkur undir lokin þá misstum við ekki einbeitinguna. Við héldum áfram að leika kerfin okkar vel og náðum að vinna lífsnauðsynlegum sigur,“ sagði Dagur.
hjorvaro@mbl.is 4