Þrjár alslemmur. A-Allir
Norður | |
♠K92 | |
♥ÁKD862 | |
♦84 | |
♣ÁK |
Vestur | Austur |
♠73 | ♠854 |
♥3 | ♥G10974 |
♦1073 | ♦K2 |
♣D987532 | ♣G104 |
Suður | |
♠ÁDG106 | |
♥5 | |
♦ÁDG965 | |
♣6 |
Suður spilar 7♠.
Þrjár alslemmur vinnast í NS, en þær eru mjög misjafnar að gæðum. Í 7♦ þarf ♦K að liggja fyrir svíningu, annar eða þriðji. Það er veikasta slemman (36%). Í 7G eru tveir möguleikar, hjartað 3-3 eða ♦K réttur (68%). Spaðaslemman er sterkust og þar enduðu bæði pör á landsliðsæfingu í síðustu viku. Útspilið var óþægilegt lauf.
Nákvæmast er að spila spaða heim í öðrum slag til að tékka á tromplegunni. Næsta verk er að spila hjarta á ás og trompa hjarta hátt. Ef báðir fylgja lit er hjartað orðið frítt og tígulsvíning óþörf í 3-2 legu í trompi. En hér reynist vestur eiga einspil í hjarta og þá verður að svína fyrir ♦K – og það strax til að þurfa ekki að treysta á kónginn annan.
Hverjar eru heildarvinningslíkur? Það þarf doktorsgráðu í tölfræði til að reikna það út, en í kringum 80% er ekki fráleit ágiskun.