Söngvarinn Rag'N'Bone Man og kærastan hans Beth Rouy tilkynntu að von væri á erfingja í september og það verður nóg að gera hjá söngvaranum því hann er búinn að bóka sig á þrjár tónlistarhátíðir í september, þó að hann segi sjálfur að hann verði búinn...

Söngvarinn Rag'N'Bone Man og kærastan hans Beth Rouy tilkynntu að von væri á erfingja í september og það verður nóg að gera hjá söngvaranum því hann er búinn að bóka sig á þrjár tónlistarhátíðir í september, þó að hann segi sjálfur að hann verði búinn að klára þau verkefni áður en barnið komi í heiminn.

Parið segist hafa verið himinlifandi þegar þau vissu fyrir víst að það væri barn á leiðinni. Rory segir: „Það verður mikið að gera í sumar, tónleikaferðalag um Evrópu og víðar framundan og síðan auðvitað þrjár tónlistarhátíðir sem búið er að bóka mig á milli 3. og 10 september.“