Boðið verður upp á vinnusmiðju í Mengi í dag, mánudag, með tyrknesk/kasösku raddlistakonunni Saadet Türköz. Stutt er síðan hún hélt tónleika í Mengi ásamt gítarleikaranum Guðmundi Péturssyni. Vinnusmiðjan fer fram milli kl. 17 og 20.
Boðið verður upp á vinnusmiðju í Mengi í dag, mánudag, með tyrknesk/kasösku raddlistakonunni Saadet Türköz. Stutt er síðan hún hélt tónleika í Mengi ásamt gítarleikaranum Guðmundi Péturssyni. Vinnusmiðjan fer fram milli kl. 17 og 20. Þátttakendafjöldi er takmarkaður og því þurfa áhugasamir að skrá sig með því að senda tölvupóst á netfangið ingibjorgfrida@gmail.com. Aðgangseyrir er 3.500 krónur, en innifalin er máltíð í lok vinnusmiðjunnar.