Íslensku karla- og kvennalandsliðin töpuðu síðustu leikjum sínum í 2. umferð undankeppni HM í blaki um helgina og luku því bæði liðin keppni í mótinu án þess að vinna hrinu.

Íslensku karla- og kvennalandsliðin töpuðu síðustu leikjum sínum í 2. umferð undankeppni HM í blaki um helgina og luku því bæði liðin keppni í mótinu án þess að vinna hrinu.

Karlarnir, sem léku í Lyon í Frakklandi, mættu Aserbaídsjan og töpuðu 0:3 í leik sem stóð í 71 mínútu, 25:16, 25:17 og 25:20. Theódór Óskar Þorvaldsson átti fínan leik í íslenska liðinu og fékk flest stig allra leikmanna í honum og hann var sérlega sterkur í sókninni, átti þar marga skelli sem gáfu stig.

Íslenska liðið tapaði því öllum fimm leikjum sínum eins og við var að búast enda eru mörg af sterkustu blakliðum Evrópu í riðlinum, meðal annars Evrópumeistarar Frakka.

Konurnar, sem léku í Warsjá í Póllandi, mættu liði Slóvakíu og töpuðu einnig 0:3 og stóð sá leikur í 66 mínútur. Fyrsta hrinan endaði 25:11, sú næsta 25:21 og sú þriðja 25:11. Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir átti bestan leik í liði Íslands og einnig átti Elísabet Einarsdóttir fínan dag. Mesti munurinn á liðunum lá í móttökunni því íslenska liðið klikkaði 15 sinnum í móttöku en mótherjarnir aðeins þrívegis. skuli@mbl.is