Guðbjörg Lind Jónsdóttir
Guðbjörg Lind Jónsdóttir
Listsýning Guðbjargar Lindar Jónsdóttur verður opnuð annan í hvítasunnu, 5. júní, kl. 18 í safnaðarheimili Kópavogskirkju. Sýningin samanstendur af úrvali verka úr eigu listamannsins en viðfangsefni Guðbjargar Lindar hafa löngum tengst vatni.
Listsýning Guðbjargar Lindar Jónsdóttur verður opnuð annan í hvítasunnu, 5. júní, kl. 18 í safnaðarheimili Kópavogskirkju. Sýningin samanstendur af úrvali verka úr eigu listamannsins en viðfangsefni Guðbjargar Lindar hafa löngum tengst vatni. Í verkum hennar segir af ferðalagi á vit veraldar þar sem skynja má hið upphafna í sjálfum einfaldleikanum. Kór unglinga frá Lúxemborg mun syngja nokkur lög í tilefni opnunarinnar. Sýningin verður opin virka daga á milli 9 og13 og eftir samkomulagi. Lokað er í júlí.