Fullt hús Hilmir Feyr Heimisson tekur við verðlaunum úr hendi Agnars Tómasar Möller frá GAMMA sem var aðalstyrktaraðili Meistaramóts Skákskólans.
Fullt hús Hilmir Feyr Heimisson tekur við verðlaunum úr hendi Agnars Tómasar Möller frá GAMMA sem var aðalstyrktaraðili Meistaramóts Skákskólans. — Morgunblaðið/SÍ
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Af þeim bókum sem Jan Timman hefur skrifað held ég mest upp á „The art of chess analysis“, samantekt viðureigna frá tímabili þegar Hollendingurinn var að hasla sér völl í skákheiminum.

Af þeim bókum sem Jan Timman hefur skrifað held ég mest upp á „The art of chess analysis“, samantekt viðureigna frá tímabili þegar Hollendingurinn var að hasla sér völl í skákheiminum. Timman tekur nokkur dæmi um djarfar ákvarðanir við skákborðið: Bobby Fischer sat að tafli andspænis Júgóslavanum Milan Matulovic á millisvæðamótinu í Palma á Mallorca síðla árs 1970 og virtist geta tekið jafntefli með því að endataka leiki. Staða hans var greinilega lakari en hann hafnaði því að þráleika og hélt baráttunni áfram. Skákinni lauk um síðir með jafntefli en þetta dæmi og annað sem Timman tók úr viðureign Karpovs í Las Palmas á Kanaríeyjum frá árinu 1977 gegn Ungverjanum Andras Adorjan eru lýsandi dæmi um óbilandi sjálfstraust þeirra allra bestu á hátindi ferilsins. Timman hefði getað bætt við dæmum úr skákum þess heimsmeistara sem lengst sat; Emanuel Lasker tók oft á sig erfiðar stöður og jafnvel tapaðar eingöngu til þess að geta haldið baráttunni áfram. Og mér sýnist að þessi lyndiseinkunn sem hér er lýst eigi vel við núverandi heimsmeistara, Magnús Carlsen.

Á Meistaramóti Skákskóla Íslands sem haldið var um síðustu helgi féllu leikir þannig í baráttu tveggja af sigurstranglegustu keppendunum:

Meistaramót Skákskóla Íslands 2017; 3. umferð:

Hilmir Freyr Heimisson – Jón Trausti Harðarson

Trompowsky-byrjun

1. d4 Rf6 2. Bg5 Re4 3. h4 c5 4. dxc5 Da5+ 5. Rd2 e5 6. c3 Rxd2 7. b4 Dc7 8. Bxd2 b6 9. cxb6 axb6 10. e4 Bb7 11. Bd3 Be7 12. Re2 d5 13. Rg3 Rd7 14. De2 O-O 15. h5 dxe4 16. Bxe4 Bxe4 17. Dxe4 Rf6 18. De2 Rd5 19. O-O Rxc3 20. Bxc3 Dxc3 21. h6 g6 22. Hac1 Dd4 23. Hfd1 Df4 24. Hc6 Hfd8 25. Hxb6 Bxb4 26. Hxd8+ Hxd8 27. Re4 Dxh6

- Sjá stöðumynd 1 -

Þú ert einn efstur í mótinu og ert að tefla við stigahæsta keppandann. „Besti“ leikurinn er 28. Hxb4 en þá þvingar svartur fram jafntefli með þráskák, 28. ... Dc1+ 29. Kh2 Dh6+ o.s.frv. Hvað gerir þú? Jafntefli þarf ekki að henta illa; eftir aðra leiki er svarta staðan heldur betri að mati „vélanna“ og hvítur er peði undir. Það virtist ekki hvarfla að Hilmi að sættast á skiptan hlut og hann lék ...

28. g3!? Be7 29. Kg2 Hc8 30. Hb1 Df8 31. a4 f5 2. Rd2 Bf6 33. Da6 Bg7 34. Rf3 De8 35. Hb7 e4 36. Rg5 e3 37. Dd6

37. ... Kh8 38. Dd5

Í einhverjum tilvikum á þessum kafla hefði svartur getað gert betur en núna varð hann að leika 38. ... Dc6 og staðan er í jafnvægi.

38. ... e2?? 39. Rf7+ Kg8 40. Rd6+ Kh8 41. Rxe8 e1(D) 42. Rxg7 f4 43. Rh5!

og svartur gafst upp, 43. .. gxh5 er svarað með 44. Dd4+ og mátar.

Hilmir Freyr lét ekki staðar numið eftir þennan sigur og vann stigahærri flokki meistaramótins með fullu húsi. Efstu menn urðu: 1. Hilmir Freyr Heimisson 5 v. (af 5) 2. Bárður Örn Birkisson 3½ v. 3.-5. Aron Thor Mai, Alexander Oliver Mai og Jón Trausti Harðarson 2½ v.

Í flokki keppenda undir 1.600 Elo-stigum urðu jafnir og efstir Gunnar Erik Guðmundsson, Örn Alexandersson og Þorsteinn Magnússon allir með 6 vinninga af átta mögulegum. Við stigaútreikning reyndist Gunnar Erik hlutskarpastur. Efstur í flokki keppenda undir 1.200 Elo-stigum var Magnús Hjaltason.

Aðalstyrktaraðili mótsins var GAMMA.

Helgi Ólafsson helol@simnet.is

Höf.: Helgi Ólafsson helol@simnet.is