Kevin Durant
Kevin Durant
Golden State Warriors bar sigur úr býtum gegn ríkjandi meisturum Cleveland Cavaliers í fyrstu viðureign liðanna í lokaúrslitum NBA-deildarinnar í körfuknattleik í fyrrinótt. Leikurinn endaði með 22 stiga sigri Warriors, 113:91.

Golden State var yfir í hálfleik, 60:52, en liðið er ósigrað í þrettán leikjum úrslitakeppninnar í ár. Golden State sýndi mikla yfirburði og var yfir allan leikinn, en Kevin Durant var stigahæstur með 38 stig, átta fráköst og átta stoðsendingar. Liðsfélagi Durant, Stephen Curry, var næstur með 28 stig og tíu stoðsendingar. Golden State tapaði boltanum einungis fjórum sinnum, en Cleveland 20 sinnum, auk þess sem skotnýting Cleveland var aðeins 34,9%. LeBron James var afkastamestur í liði Cleveland með 28 stig, 15 fráköst og átta stoðsendingar. Vinna þarf fjóra leiki til að standa uppi sem sigurvegari, en næsti leikur liðanna fer fram aðfaranótt mánudagsins á heimavelli Golden State.

kristinmaria@mbl.is