Drake hefur áhuga á tískunni.
Drake hefur áhuga á tískunni.
Tónlistarmaðurinn Drake hefur mörg járn í eldinum en hann var sá sigursælasti á Grammy-verðlaunahátíðinni fyrir skömmu. Drake virðist einnig hafa mikinn áhuga á tísku en ný skólína í hans nafni hefur nú litið dagsins ljós.
Tónlistarmaðurinn Drake hefur mörg járn í eldinum en hann var sá sigursælasti á Grammy-verðlaunahátíðinni fyrir skömmu. Drake virðist einnig hafa mikinn áhuga á tísku en ný skólína í hans nafni hefur nú litið dagsins ljós. Hann fetar því í fótspor kollega síns Kanye West sem hannar hina gríðarlega vinsælu Yeezy Boost undir merkjum Adidas. Skór Drake falla undir merkið OVO sem er fatalína Drake og fást í þremur litum. Orðin „Know yourself“ eða „Þekktu sjálfan þig“ eru rituð undir tungunni í hverjum skó.