Ódæði Árásarmaðurinn lést.
Ódæði Árásarmaðurinn lést.
Minnst 36 eru látnir og fjölmargir særðir eftir eldsvoða í spilavíti í Manila, höfuðborg Filippseyja, í fyrrinótt.

Minnst 36 eru látnir og fjölmargir særðir eftir eldsvoða í spilavíti í Manila, höfuðborg Filippseyja, í fyrrinótt. Fréttaveita AFP greinir frá því að grímuklæddur maður hafi ráðist þangað inn, skotið af sjálfvirkum riffli og lagt eld að spilaborði með fyrrgreindum afleiðingum.

Stjórnvöld á Filippseyjum segja ódæðið ekki rannsakað sem hryðjuverk. Eftir að maðurinn lagði eld að borðinu hélt hann lengra inn í bygginguna og kom sér fyrir inni í hótelherbergi. Þar er hann sagður hafa lagst í rúm, hellt eldfimum vökva yfir sig og kveikt í. Lögreglumenn fundu illa brunnið lík hans þar inni um fimm klukkustundum eftir árásina.