Bubbi Morthens
Bubbi Morthens
Eftir Bubba Morthens: "Meðan íslenskan er að berjast fyrir lífi sínu í brimboðum enskunnar hafa menn slökkt á vitanum."

Yngsta dóttir mín – hún er fimm ára – hrópaði upp yfir sig öðru hvoru „oh my goodness“ þangað til ég sagði henni að prófa að hrópa „guð minn góður“ í staðinn. Og viti menn: það virkaði. Þegar henni er mikið niðri fyrir hrópar hún hátt og snjallt „guð minn góður“!

Íslenskan á undir högg að sækja þessa dagana. Tölvur, snjallsímar, bíó og sjónvarp með enskuna að vopni brjóta niður varnir íslenskunnar án erfiðleika. Æ fleira ungt fólk í tónlistarheiminum kýs að syngja á ensku en sem betur fer kjósa margir enn þá að syngja og rappa á íslensku.

Heimurinn er ekki lengur stór. Hann er í raun ekki stærri en síminn í lófa þér. Þar gerist allt. Þar eru stjórntækin enskumælandi, leikirnir, textinn, allt er á ensku. Meðan íslenskan er að berjast fyrir lífi sínu í brimboðum enskunnar hafa menn slökkt á vitanum. Það sést ekki til lands. Æ fleiri fyrirtæki í græðgibríma kasta íslenskunni. Í veitingahúsabransanum er það að verða þannig að þjónar tala ekki íslensku, matseðlar eru á ensku, staðirnir bera ensk nöfn. Í fjármálageiranum fara fyrirlestrar fram á ensku. Það nýjasta nýja er að Flugfélagi Íslands varð brátt í brók og skírði kúkinn Air Iceland Connect. Virðingin fyrir sögunni, arfleifðinni, tungumálinu var ekki meiri hjá þessu gamalgróna fyrirtæki.

Nú er sjálf okkar, innsti kjarninn, rót menningar okkar að veði. Við verðum að snúa vörn í sókn. Það er mikilvægara að setja peninga í að íslenska tölvur en að grafa göng, svo dæmi sé tekið. Hvernig væri að hin ofsaríku útgerðarfyrirtæki, sem hafa mokað milljörðum upp úr hafinu árum saman, settu ásamt íslenskum stjórnvöldum peninga í það verkefni að bjarga íslenskunni?

Við verðum líka öll að vera vakandi heima fyrir, leiðrétta börnin okkar og okkur sjálf. Það er enn þá ort á íslensku, það er enn þá sungið á íslensku, enn þá eru skrifaðar bækur á íslensku, við tölum enn þá íslensku, fréttir eru sagðar á íslensku, en hversu lengi verður það þegar hvert fyrirtækið af öðru í borginni ber enskt nafn? Þó að ferðamenn komi hingað í áður óþekktum mæli þá þurfum ekki að gefa íslenskuna upp á bátinn.

Ég heyrði í útvarpinu um daginn viðtal við fólk frá Belgíu sem hafði verið á tónleikum með Ásgeiri Trausta. Hann er að túra um heiminn og eðlilega syngur hann að mestu á ensku. En fólkið sem var talað við kvartaði yfir því að hann hefði ekki sungið á íslensku. Ég heyrði að Ólafur Páll útvarpsmaður var jafnhissa og ég.

Enskan er komin á fullt í orðaforða barna okkar, fullorðið fólk slettir til hægri og vinstri, fréttafólk notar ensk orð í beinni í staðinn fyrir góð íslensk orð. Ég heyri vini barna minna nota enskuna svo mikið að það er verulegt áhyggjuefni. Við þurfum á íslenskunni að halda og íslenskan þarf á okkur að halda. Þú berð ábyrgð. Við berum ábyrgð á að tungumálið okkar lifi.

Setjum hjartað í málið.

Höfundur er skáld og tónlistarmaður.

Höf.: Bubba Morthens