[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Söngkonan Rihanna fékk slæma útreið hjá bloggaranum Chris Spags fyrir skömmu. Spags skrifar fyrir síðuna „Barstool sports“ og hefur fengið mjög harða gagnrýni fyrir greinina sem fjallar um holdafar söngkonunnar.
Söngkonan Rihanna fékk slæma útreið hjá bloggaranum Chris Spags fyrir skömmu. Spags skrifar fyrir síðuna „Barstool sports“ og hefur fengið mjög harða gagnrýni fyrir greinina sem fjallar um holdafar söngkonunnar. Hann var ansi orðljótur í hennar garð og sagði til dæmis að hún hefði greinilega notið herbergisþjónustu of lengi og líkti henni við sumo-glímukappa. Twitter logaði eftir skrifin en bloggaranum fannst fólk gera úlfalda úr mýflugu og sá ekki að sér. Greinin hefur hins vegar verið fjarlægð af síðunni.