Ester Eva Hall fæddist 13. september 1988. Hún lést 2. júní 2017.

Minningarathöfn Esterar Evu fór fram 6. júlí 2017

Elsku fallega systurdóttir mín, Ester Eva, kvaddi þennan heim langt fyrir aldur fram. Hún hafði hjarta úr gulli og fallega sál.

Ester Eva var góð móðir sem hugsaði vel um drengina sína og alla í kringum sig. Margar góðar og skemmtilegar minningar rifjast upp á þessari sorgarstundu, elsku fallegi engillinn minn. Þú fékkst einhvern veginn alla til að líða vel með yndislegri nærveru þinni og fallegu brosi þínu.

Mér er minnisstætt þegar þú og æskuástin þín, Spencer, komuð og tókuð í spil með okkur í Vesturásnum. Ég hafði á tilfinningunni að þú værir með barni án þess að ég vissi það. Nefndi við ykkur að þetta væri drengur sem kom svo á daginn.

Kvöldstundirnar sem þú eyddir með Stefáni Karel við lestur til að koma honum í svefn sýna hversu barngóð þú varst. Góðu vináttuna ykkar Karls Fannars og góðu stundirnar sem þið áttuð saman mun ég geyma í hjarta mínu. Í yndislegu drengjunum þínum sé ég fallega brosið þitt sem mun alltaf minna mig á þig.

Hvíl þú í friði, elsku engillinn minn, og megi góður Guð varðveita þig og blessa.

Ég mun ávallt elska þig.

Þín frænka,

Kalla.