Núpur Þrjár byggingar ríkisins eru til sölu.
Núpur Þrjár byggingar ríkisins eru til sölu.
Þrjár byggingar ríkisins, sem áður hýstu héraðsskólann á Núpi í Dýrafirði, eru nú auglýstar til sölu.

Þrjár byggingar ríkisins, sem áður hýstu héraðsskólann á Núpi í Dýrafirði, eru nú auglýstar til sölu. Söluferli eignanna hefur verið í biðstöðu síðan árið 2010, er þáverandi mennta- og menningarmálaráðherra skipaði nefnd sem gert var að setja fram hugmyndir um framtíð eignanna og aðstöðu ríkisins á staðnum. Óljóst er hvort sú nefnd skilaði einhverjum niðurstöðum, samkvæmt svari frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu.

Fjármálaráðuneytið fól Ríkiskaupum að annast sölu eignanna í febrúar í fyrra. Forstjóri Ríkiskaupa segir tímafrekt að ráðast í sölu ríkiseigna sem þessara.

Engin skilyrði eru sett af hálfu ríkisins um framtíðarnýtingu eignanna, en í dag er rekið gistiheimili í hluta skólahúsnæðisins. 10