Blæðandi hindrun. V-AV
Norður | |
♠84 | |
♥762 | |
♦ÁD9654 | |
♣G2 |
Vestur | Austur |
♠D1032 | ♠ÁG97 |
♥5 | ♥D983 |
♦K1032 | ♦G |
♣10643 | ♣K975 |
Suður | |
♠K65 | |
♥ÁKG104 | |
♦87 | |
♣ÁD8 |
Suður spilar 3G.
Vestur passar og norður á næsta leik með dæmigerða (innrammaða) opnun á veikum tveimur í tígli – sexlitur og 6-10 punktar. En því miður er sú sögn ekki á lausu í kerfinu. Hvað á þá að gera? Segja pass eða teygja sig í 3♦?
Í BBO-leik Brosbikarsins opnuðu bæði Jeoff Hampson og Shaolin Sun á 3♦. Tilgangurinn var vafalaust sá að koma austri í klípu, en í reynd var það makker í suður sem lenti í vanda. Þrjár sagnir koma til greina: pass, 3♥ eða 3G. Eric Greco sagði pass (og 3♦ unnust með tveimur yfirslögum), en Meng Kang veðjaði á 3G (og fór þrjá niður). Besti samningurinn (4♥) var aldrei í sjónmáli.
Óagaðar (blæðandi) hindranir eru vafasamar í annarri hendi. Eftir upphaflegt pass vesturs snýr hindrunin bara að öðrum mótherjanum og makker – einn á móti einum. Auk þess eru líkur á sekt meiri, því passaði maðurinn á auðvelt með að verndardobla.